Um bókasafnið

Bókasafnið er upplýsingamiðstöð fyrir nemendur, kennara og starfsfólk skólans. Starfsemi þess styður nám, kennslu, félagslíf og þróunarstarf í skólanum.
Safnkostur: Safnið er fyrst og fremst búið bókum, tímaritum og öðrum gögnum sem tengjast kennslugreinum skólans. Alls eru nú um 6800 bækur, tímarit, myndbönd, margmiðlunarefni og geisladiskar á safninu. Safnkostur er skráður í Gegni .
Aðstaða: Á safninu er lesaðastaða fyrir 30 nemendur í senn, þar að auki 5 tölvur og prentari. Í einni af tölvum safnsins er talgervill.
Starfsmaður bókasafns er: Hulda Sigurdís Þráinsdóttir This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Sími á bókasafninu er: 471 2506
Opnunartími safnsins:
mánudaga - fimmtudaga kl. 9.00 - 18.00
föstudaga kl. 9.00 - 16.00
Viðvera starfsmanns er frá kl.9.00 - 13.00 alla virka daga.


