Fjarnám
Flestir áfangar sem kenndir eru í Menntaskólanum á Egilsstöðum eru einnig í boði í fjarnámi. Þá er notað fjarkennslukerfið Moodle sem vistað er á vefnum www.kennsluvefur.is.
Kennsla á haustönn 2013 er samkvæmt nýrri skólanámskrá ME. Hverri önn er skipt í tvær lotur sem við köllum spannir. Hverjum áfanga verður þá lokið á 8 vikum að jafnaði, einnig í fjarnámi. Nánari upplýsingar má finna undir "Ný námskrá" hér fyrir ofan.
Þetta þýðir að fjarnemar taka aðeins 1-2 áfanga á hverri spönn en geta þannig lokið allt að fjórum áföngum samtals á önn. Tekið er við skráningum fyrir heila önn í einu og síðan verður áföngum raðað á spannir. Einnig er möguleiki að koma beint inn á seinni spönn.
Áfangaframboð vorannar hefur nú verið birt og opnað fyrir skáningar hér á heimasíðunni. Tekið verður við skráningum til miðnættis 18. ágúst og fá umsækjendur þá fljótlega svarbréf með tölvupósti. Kennsla hefst 19.ágúst.
Skráning í fjarnám haustönn 2013
Þá er í samstarfi við aðra framhaldsskóla boðið upp á fjarnám á starfsnámsbrautum eins og félagsliðabraut og sjúkraliðabraut. Nánari upplýsingar eru hér: Starfsnámsbrautir í samstarfi við aðra skóla.
ATHUGIÐ!
Mikilvægt er að fjarnemar hafi netfang og sæmilega góða nettengingu. Grunnforrit eins og ritvinnsluforrit og forrit til að skoða PowerPoint glærur, þurfa að vera til staðar, þekking nemenda á notkun þeirra og færni til að tileinka sér notkun kennsluvefs. Síðast en ekki síst þurfa fjarnemar að hafa tíma til að stunda námið!
Þeir nemendur sem eru með Hotmail netföng eru beðnir að athuga að líklegt er að fjölpóstur til þeirra lendi í möppu fyrir ruslpóst þar sem honum er eytt eftir aðeins 5 daga. Þetta getur átt við um póst frá ME, en er hægt að forðast með því að setja viðkomandi netfang á lista yfir örugg netföng (Safe List).
Nánari upplýsingar í síma 471-2500 eða hjá kennslustjóra fjarnáms, netfang: This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.


