Heilsueflandi framhaldsskóli

Menntaskólinn á Egilsstöðum er þátttakandi í Heilsueflandi framhaldsskóla verkefninu. Verkefnið snýr að heildrænni stefnu í forvarnar- og heilsueflingarmálum sem gerir framhaldsskólum kleift að marka sér skýra stefnu, skerpa á aðgerðaráælunum og forvörnum og jafnframt mynda skýran ramma utan um þennan almenna málaflokk.
Markmið verkefnissins er að stuðla markvisst að velferð og góðri heilsu framhaldsskólanemenda. Enda hafa rannsóknir sýnt að heilsueflandi umhverfi bætir líðan nemenda og stuðlar að betri námsárangri. Megin áhersla er lögð á fjóra þætti: næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl. Eitt viðfangsefni er tekið fyrir á hverju ári þannig að þegar nemandi útskrifast að fjórum árum liðnum hefur hann fengið haldbæra þekkingu á hollum lífsháttum og tækifæri til að tileinka sér þá.



Menntaskólinn á Egilsstöðum er vel staddur en könnun vorið 2011 leiddi í ljós að nemendur skólans lifa almennt heilsusamlegu lífi og hreyfa sig reglulega. Hinsvegar má alltaf gera betur og fræðast meira. Menntaskólinn á Egilsstöðum nálgast forvarnir út frá víðtæku og jákvæðu sjónarhorni með það að markmiði að sluðla að vellíðan og auknum árangri allra í skólasamfélaginu, nemenda og starfsfolks. Hugmyndafærði um heilsueflandi framhaldsskóla fellur mjög vel að þeirri sýn og veitir aukin tækifæri til að efla tengslin við nærsamfélagið og auka þannig stuðning og tækifæri nemenda og starfsfólkt til að tileinka sér jákvæðan og heilbrigðan lífstíl. Með heildrænni nálgun á viðfangsefnið heilsa höfum við smám saman áhrif á daglegar venjur nemenda og starfsfólks í átt til betri heilsu og bættrar líðan.


