Print

Heimavist

Heimavist er starfrækt við skólann.

Í heimavistarhúsi eru 52 heimavistarherbergi sem rúma tvo til þrjá nemendur og samtals eru 117 heimavistarpláss. Nýnemar sækja um heimavist í gegnum skólaumsókn sína á netinu en eldri nemendur sækja um heimavistarpláss á þar til gerðum eyðublöðum á auglýstum umsóknarfresti.

Húsfreyja heimavistar raðar nemendum á herbergi að hausti. Óskir um herbergisfélaga skulu berast henni tímanlega t.d. tveimur vikum fyrir opnun vistarinnar. Óski nemandi eftir því að vera einn á herbergi fer það eftir aðsókn hvort hægt er að koma því við. 

Leiga fyrir heimavistarpláss er kr 12.500,- á mánuði miðað við 2-3 á herbergi en kr 20.000,- á mánuði fyrir einstaklingsherbergi. Heimavistargjöld eru innheimt með greiðsluseðlum og er skipt í tvær greiðslur á önn. Að auki greiðir nemandi 4000,- kr tryggingagjald sem hann fær endurgreitt að vori, eða um áramót, skili hann herbergi og herbergislykli í viðunandi horfi. 

Reglur heimavistar má lesa með því að smella á tengilinn til vinstri.