Innra mat

Print

Innra mat í Menntaskólanum á Egilsstöðum

Starfshópur um innra mat starfar við skólann. Hlutverk hópsins er að stýra með kerfisbundnum hætti mati á gæðum skólastarfsins, í samræmi við 40. og 41. grein laga um framhaldsskóla nr 92 frá 2008. Samkvæmt lögunum eru markmið matsins að:

  1. veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks framhaldsskóla, viðtökuskóla, atvinnulífs, foreldra og nemenda,
  2. tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár framhaldsskóla,
  3. auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum,
  4. tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.

Hópurinn hefur verið starfræktur frá 1996. Veturinn 2012-2013 voru Jón Ingi Sigurbjörnsson, Jóney Jónsdóttir, Maríanna Jóhannsdóttir, Soffía Ingvarsdóttir, Tinna Halldórsdóttir og Þorbjörn Rúnarsson í hópnum. Jón Ingi stýrði honum þar til í mars, en þá tók Jóney við stjórninni.

Árið 2006 setti hópurinn fram aðgerðaáætlun um hvernig meta skuli þætti skólastarfsins. Viðfangsefni matsins eru a) Innra starf, yfirstjórn og verkaskipting, b) fagmennska og áherslur kennara, c) tölfræðileg samantekt um nemendur, d) mat á högum og viðhorfum nemenda, e) könnun meðal útskrifaðra nemenda, f) foreldrakönnun og g) áfangamat (þ.e. mat nemenda á kennslu, námsgögnum, samskiptum við kennara o.þ.h. Unnið var samkvæmt áætluninni fram á vorönn 2011.

Neðst á síðunni er yfirlit yfir þessar athuganir og bak við krossana eru skýrslur með niðurstöðum.

Í kjölfar þess að tilraunakennsla hófst eftir nýrri námskrá, haustið 2011, hefur starfshópur um innra mat einbeitt sér að árangri og áhrifum breytinganna. Veturinn 2011-2012 fóru fram tvær kannanir meðal nemenda á nýju námsskipulagi, skipaður var rýnihópur nemenda sem fundaði með meðlimum innramatshópsins. Vorið 2012 fór fram könnun á viðhorfum og líðan kennara í nýju kerfi og einnig fékk skólinn Gerði Óskarsdóttur til að framkvæma ytra mat á nýbreytnistarfinu.

Veturinn 2012-2013 fóru fram sambærilegar kannanir meðal nemenda og kennara, auk þess sem lögð var fyrir könnun meðal foreldra nemenda skólans. Einnig fór áfangamat fram í fyrsta skipti eftir breytingarnar. Meðaltalsniðurstöður voru unnar úr áfangamatinu. Rýnihópur nemenda fundaði einnig tvisvar.

Í þessari töflu má finna tengla á skýrslur um eftirtalda matsþætti. Smellið á krossana til að opna skýrslurnar.

Matsþáttur Sumar 2011 Haust 2011 Vor 2012 Haust 2012 Vor 2013 Haust 2013
Nemendakönnun Nýnemakönnun x  x

Könnun á viðhorfum kennara

 x
Foreldrakönnun  x
Áfangamat  x  
Ytra mat
Skýrsla vegna rýnihóps

 

Hér má sjá sjálfsmatsáætlunina sem var í gildi til haustsins 2011: Sjálfsmatsáætlun

Hér að neðan er yfirlit yfir þær kannanir og möt sem fram fóru frá 2003 til 2011:

Önn
Verkefni
V03
H03
V04
H04
V05
H05
V06
H06
V07
H07
V08
H08
V09
H09
V10
H10
V11
H11
i) Aðgerðaáætlun innra mats endurskoðuð

x

 

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

ii) Mat á innra starfi skólans, s.s. yfirstjórn og verkaskiptingu

x

 

x

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

 

x

 

 

 

iii) Mat á fagmennsku og áherslum kennara

x

 

 

 

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

 

x

 

 

iv) Tölfræðileg samantekt um nemendur

 

 

 

 

 

 

x

 

x

 

x

 

x

 

x

 

x

 

v) Mat á högum og viðhorfum nemenda (nemendakönnun)

 

 

 

 

x

 

x

 

 

 

 

x

x )

 

x

 

 

 

vi) Könnun meðal útskrifaðra nemenda

 

 

 

 

x

 

 

 

 

 

x x

 

 

 

 

 

x

 

vii) Foreldrakönnun

 

 

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

 

x

 

 

 

 

viii) Áfangamat

 

x

x

 

 

 

 

 

 

 

x

x

x

x

x

 

x

 

ix) Annað

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

x

 

x

 

 

 

x

Auk þess sem fram kemur í töflunni hér að ofan er stjórnendum ætlað að taka starfsmannaviðtöl með reglulegu millibili og safna á grundvelli þeirra gögnum um "hvaða þætti starfsfólk er ánægt með", "hvað mætti bæta" og "leiðir til úrbóta".

Á vormisseri 2008 var gerð úttekt á sjálfsmatsaðferðum Menntaskólans á Egilsstöðum á vegum menntamálaráðuneytis. Samkvæmt þeirri úttekt uppfyllir ME bæði viðmið ráðuneytis um sjálfsmatsaðferðir og um framkvæmd sjálfsmats. Niðurstöður úttektarinnar má sjá í heild sinni hér.

Haustið 2010 var samþykkt nýtt vinnuferli innra mats.

Hér að neðan má sjá sjálfsmatsskýrslur síðustu ára:

Ársskýrlsa sjálfsmats við ME 2005-2006

Ársskýrsla sjálfsmats við ME 2006-2007

Ársskýrsla sjálfsmats  við ME 2007-2008

Ársskýrsla sjálfsmats við ME 2008-2009

Ársskýrsla sjálfsmats við ME 2009-2010

Ársskýrsla sjálfsmats við ME 2010-2011

Ársskýrsla sjálfsmats við ME 2011-2012

Helstu verkefni verkefnisstjóra innra mats eru þessi