Print

Hraðbraut

 

Brautin er ætluð nemendum sem gengur vel í námi og ætla að ljúka náminu á sex til sjö önnum. Hægt er að sækja um inngöngu á brautina á fyrsta námsári (helst á fyrstu önn).

Markmið hraðbrautar er að:

  • Greiða leiðina fyrir þá nemendur sem geta og vilja ljúka stúdentsprófi á skemmri tíma.
  • Gera nemendum kleift að nýta hæfileika sína til fulls.
  • Hvetja nemendur til ábyrgðar á námi sínu.
  • Auka metnað og jákvætt viðhorf til náms.
  • Gera þennan hóp sýnilegan og fyrirmynd annarra nemenda.

 

Skilyrði fyrir skráningu á hraðbraut:

  • Einkunnir á bilinu 8 – 10 í grunnskóla.
  • Góð ástundun á námstíma í ME.
  • Einkunnir á námstíma á bilinu 8-10.

 

Réttindi hraðbrautarnemenda:

  • Leyfi til að taka 4-5 áfanga á spönn.
  • Sérstök umsjón.