Nemendafélag
Nemendafélag Menntaskólans á Egilsstöðum eru hagsmunasamtök nemenda. Nemendafélagið beitir sér fyrir því að bæta líf nemenda, innan jafnt sem utan veggja skólans. Á ári hverju stendur Nemendafélagið fyrir fjölmörgum viðburðum sem taka mið af því að gera félagslífið sem fjölbreyttast og skemmtilegast, allt frá litlum spilakvöldum og upp í tryllta dansleiki. Meðlimir NME njóta ýmissa sérkjara af vörum og þjónustu. Þeir teljast meðlimir sem greitt hafa NME gjaldið við greiðslu innritunargjalds skólans.


