Opið hús í ME 20. mars

Miðvikudagskvöldið 20. mars verður opið hús í ME á milli kl. 18:00-20:00. Hægt er að koma við hvenær sem er á þeim tíma og er hæfilegt er að reikna með klukkustund í heimsóknina.
 
Á viðburðinum býðst, bæði nemendum og forráðafólki, tækifæri til að öðlast skemmtilega innsýn inn í skólastarfið, námsframboðið, þjónustuna, heimavistarlífið og síðast en ekki síst félagslífið. Nemendur, kennarar og starfsfólk sýna frá skólastarfinu á stöðvum víðsvegar um skólann og ykkur gefst tækifæri til að spyrja að öllu því sem ykkur langar að vita um ME. Boðið verður upp á léttan kvöldverð í mötuneytinu.

Viðburðurinn er nokkurs konar ratleikur með spurningum og verkefnum sem fólk leysir í símunum sínum með því að rölta um húsakynni skólans og spjalla við nemendur og starfsfólk. Leikurinn fer fram í gegnum smáforritið Actionbound sem við mælum með að fólk sé búið að hlaða niður í símana sína fyrir komuna í ME (hér má finna niðurhal fyrir iOS síma og Android).
 
Á meðal vinninga fyrir stigahæstu einstaklinginn/liðið í ratleiknum eru niðurfelling skólagjalda á haustönn 2024, NME skólapeysur og frímiðar á nýnemaball.
Þau sem vilja geta að sjálfsögðu sleppt ratleiknum og gengið um skólann. 
 
Við viljum vinsamlegast biðja ykkur að skrá komu ykkar í gegnum hlekkinn ekki síðar en 13. mars:
https://forms.office.com/e/uZTqALaAGy
 
Við vonumst til að sjá sem flesta þetta kvöld!