Íþróttaakademía ME

Í Menntaskólanum á Egilsstöðum er góður möguleiki á að stunda nám tengt við afreksíþróttir. Nemendur sem æfa og spila með sínum liðum reglubundið hafa möguleika á því að æfa tvær auka æfingar tengt við skóla.

Nemendur fá tíma í afreksíþróttum metna til eininga eftir því formi sem skólinn býður upp á. Þau sem eru í afreksæfingum og keppni með sínu félagi utan akademíu ME fá 3 einingar á önn.

Á hverri önn er fræðsla/fyrirlestur fyrir alla iðkendur íþróttaakademíu ME sem kemur inn á grunnþætti árangurs í íþróttum, sem dæmi: svefn, næring, líkamleg og andleg þjálfun.

Knattspyrna

Tvær æfingar í viku sem eru klukkan 8:00 á þriðjudögum og fimmtudögum. Áhersla lögð á tækniþjálfun til þess að nemendur geti aukið færni sína til að hámarka árangur með sínu félagi. Uppsetning æfinga og álag tekur mið af því hvar á tímabilinu nemendur eru því keppnistímabil skarast inn í skólaárið. Skólaárið 24-25 voru um 25 nemendur í knattspyrnuakademíu ME.

Körfubolti

Tvær æfingar í viku sem eru klukkan 8:00 á mánudögum og miðvikudögum. Æfingarnar eru auka æfingar í tækniþjálfun sem nemendur nýta sér til að hámarka árangur sinn. Æfingar með Hetti fara svo fram seinnipart dags og eru góð samskipti milli þjálfara í íþróttaakademíu ME og Körfuknattleiksdeildar Hattar. Skólaárið 24-25 voru 12 nemendur í körfuknattleiksakademíu ME.

Fimleikar

ME í samstarfi við Fimleikadeild Hattar sem sér alfarið um æfingar sem fara fram seinnipart dags og miða við æfingatöflu Fimleikadeildar Hattar. Aðstaðan til fimleikaiðkunar er mjög góð á Egilsstöðum og er aðstaðan í 2 mínútna göngufæri af heimavist skólans.