Í dag voru 47 nemendur frá ME brautskráðir við hátíðlega athöfn í Valaskjálf að viðstöddu fjölmenni. Alls voru 36 nemendur viðstaddir athöfnina en 11 fylgdust með í streymi ásamt öðrum sem ekki áttu þess kost að mæta á staðinn.
Eyrún Arnardóttir, áfangastjóri, stýrði dagskránni en ávörp fluttu Árni Ólason skólameistari, Auðun Lárusson Snædal nýstúdent, Katrín Högnadóttir þýskukennari og Sigurlaug Konráðsdóttir fyrir hönd þeirra sem fagna 45 ára stúdentsafmæli sínu í ár frá ME.
Eyrún og Árni afhentu nýstúdentum skírteini sín og í kjölfarið voru stúdentshúfurnar settar upp við mikinn fögnuð viðstaddra. Dúx skólans að þessu sinni er Ína Berglind Guðmundsdóttir með glæsilega meðaleinkunn, 9,92.

Tónlistaratriði athafnarinnar voru alfarið í höndum útskriftarnema. Flytjendur voru Auðun Lárusson Snædal (bassi), Bragi Már Birgisson (rafgítar), Ína Berglind Guðmundsdóttir (söngur, kassagítar og hljómborð), Sigríður Svandís Hafþórsdóttir (kassagítar, ukulele, hljómborð og söngur), Stefanía Þórdís Vídalín Áslaugardóttir (söngur) og Steinar Aðalsteinsson (kassagítar). Þau fluttu lögin Slipping Through My Fingers (ABBA), Þessi fallegi dagur (Bubbi) og Leiðin okkar allra (Hjálmar). Auk þess flutti Ína Berglind nýtt frumsamið lag, Fljúgðu aðeins hærra.

Starfsfólk skólans óskar útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga og þakkar kærlega fyrir samfylgdina síðustu ár. Við hlökkum til að fylgjast áfram með ykkur, úr fjarlægð, taka næstu skref. Gangi ykkur innilega allt í haginn, kæru nemendur.
Myndir frá deginum má finna hér.