57 nýstúdentar útskrifaðir frá ME í dag

Í dag voru brautskráðir 57 nemendur úr Menntaskólanum á Egilsstöðum við hátíðlega athöfn í Valaskjálf. 19 útskrifuðust af félagsgreinabraut, 5 af listnámsbraut, 6 af náttúrufræðibraut, 22 af opinni braut, 4 af starfsbraut og 1 með viðbótarnám til stúdentsprófs.

Gaman er að segja frá því að fjarnemendum sem útskrifast frá ME fjölgar sífellt, en núna voru það 18 fjarnemendur sem útskrifuðust og 39 staðnemar úr dagskóla. Þetta er til marks um öflugt fjarnám sem fer fram í ME og er keyrt samhliða dagskólanáminu.

Við óskum öllum ný-stúdentum innilega til hamingju með áfangann og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.

Myndir úr athöfninni verða aðgengilegar fljótlega hér á me.is