Nemendur og starfsfólk ME voru komin heim um kl. 15 í dag eftir vel heppnaða Starfamessu Austurlands í Neskaupstað. Hópurinn þurfti að bíða af sér veðrið fyrir heimferð en tíminn var þá nýttur í sprikl í íþróttahúsinu eða spil í matsal VA - allt eftir smekk hvers og eins.
Viðburðurinn var haldinn í annað skiptið, að frumkvæði Sveitarfélaganna á Austurlandi í samstarfi við Austurbrú, Verkmenntaskóla Austurlands og Menntaskólann á Egilsstöðum. Um 500 nemendur sóttu starfamessuna í þetta skiptið og fengu þeir þar með tækifæri til að kynnast störfum og starfstækifærum á Austurlandi. Um 100 manns tóku þátt í að kynna störf sín og starfsvettvang. Frekari fréttir af viðburðinum, auk ljósmynda, má bráðlega nálgast á vefsíðu Austurbrúar.
Hér má sjá nokkrar myndir frá deginum.