Vilt þú fara í skiptinám til Evrópu á skólastyrk?

Vilt þú fara í skiptinám til Evrópu á skólastyrk í haust?

Sæktu þá um fyrir 22 febrúar 2026, kl.23:59. 

Samstarf ME og AFS og Erasmus+ skólastyrkurinn veitir ómetanleg tækifæri fyrir ME-inga á aldrinum 16-18 ára. Þú ættir að sækja um ef þig langar til að prófa að búa í öðru landi í Evrópu og upplifa hvernig það er að vera unglingur þar, læra nýtt tungumál, upplifa nýja menningu, verða hluti af fósturfjölskyldu og fara í nýjan skóla. Þú getur sótt um ef þú ert nemandi á aldrinum 16-18 ára og hefur áhuga á skiptinámi.

Skiptinámið hefst annað hvort í

ágúst eða september 2026 og stendur í 3 mánuði 
EÐA
í janúar 2027 og stendur í 5 mánuði.

Styrkurinn mun greiða fyrir 85% af heildarkostnaði vegna skiptinámsins. Til upplýsingar er 15% kostnaðarhluti vegna 3ja mánaða náms kr. 178.500 kr. og 5 mánaða náms 283.500 kr. 

Það eru mörg lönd í Evrópu sem taka á móti nemendum í Erasmus + skiptinám, t.d. Belgía, Ungverjaland, Slóvakía, Tékkland, Tyrkland og fleiri lönd. Það er EKKI hægt að velja sér land og þeir nemendur sem að vilja fara “hvert sem er” ganga fyrir.

Athugið að sérstök áhersla er lögð á að veita nemum með færri tækifæri á að fara ískiptinám. Búseta í strjálbýli eða takmörkuð fjárráð falla meðal annars þar undir, en tekið er á móti öllum umsóknum, svo ekki hika við að sækja um.

Umsóknir, þar sem fjölskyldur umsækjenda geta hýst erlendan skiptinema á meðan á skiptinámi umsækjanda stendur, ganga fyrir öðrum umsóknum.

Allar nánari upplýsingar veitir Nanna náms- og starfsráðgjafi

⚠️Umsóknarfrestur fyrir 3 mán haustdvöl 2026: 22. febrúar 2026 kl.23:59
⚠️Umsóknarfrestur fyrir 5 mán vordvöl 2027: 1. apríl 2026 kl.23:59
⚠️Sækja um: hér