Þær gleðifréttir bárust frá Stjórnarráðinu nú í morgun að Árni Ólason hefur verið skipaður skólameistari ME til næstu 5 ára. Skólasamfélagið allt fagnar þessum tíðindum og við óskum Árna til hamingju með endurráðninguna og horfum björtum augum til framtíðar.