Barkinn, söngkeppni Menntaskólans á Egilsstöðum verður haldinn í Valaskjálf 2. mars næstkomandi. Húsið opnar kl. 19 og keppnin hefst klukkan 19:30.
Tónlistarfélag ME hefur veg og vanda af því að halda Barkann í ár eins og síðustu ár. Þetta verður glæsileg keppni þar sem 11 atriði munu keppa sín á milli og fer sigurvegarinn sem fulltrúi skólans á Söngkeppni framhaldsskólanna sem fer fram í apríl í Reykjavík. Allir keppendur munu syngja á íslensku og flest lögin verða flutt af hljómsveit. Það er mjög skemmtilegt að sjá hæfileikaríka nemendur skólans koma fram og spila og syngja og mun enginn verða svikinn af því að mæta á Barkann.
Dómarar eru þau Sigurveig Stefánsdóttir, Andri Bergmann og Björt Sigfinnsdóttir. Meðan dómarar vinna sína vinnu munu nokkur skemmtiatriði verða sýnd. Miðaverð er 2000 krónur fyrir almennan borgara og 1000 krónur fyrir börn 7-15 ára. Þeir sem eru í NME eða starfa í ME greiða 1500 krónur fyrir miðann.
Hvetjum öll til að kíkja á Barkann, þetta verður veisla!