Bókasafn Héraðsbúa og Minjasafn Austurlands komu færandi hendi

Útskriftarefni af listnámsbraut ásamt fulltrúum Haukssjóðs og kennslustjóra listnámsbrautar
Útskriftarefni af listnámsbraut ásamt fulltrúum Haukssjóðs og kennslustjóra listnámsbrautar

Fulltrúar frá Bókasafni Héraðsbúa og Minjasafni Austurlands komu færandi hendi í síðustu viku sem fulltrúar Haukssjóðs, minningarsjóðs um Hauk Stefánsson, og færðu útskriftarefnum af listnámsbraut skólans gjafir. 

Haukssjóður, minningarsjóður um Hauk Stefánsson, listmálara frá Rjúpnafelli í Vopnafirði var stofnaður af ekkju hans, Ástríði Jósepsdóttur og börnum hans. Sjóðnum var ætlað að efla myndlist á Austurlandi með viðurkenningum og bókaverðlaunum. Við stofnun sjóðsins fylgdu 100 eintök af listaverkabókum um Hauk Stefánsson sem ætlað var að standa undir starfsemi sjóðsins með sölu þeirra. Umsjónaraðilar sjóðsins, Bókasafn Héraðsbúa og Minjasafn Austurlands, hafa heiðrað útskriftarnema af listnámsbraut Menntaskólans á Egilsstöðum með því að færa þeim bækurnar að gjöf undanfarin ár. Gjöfinni er ætlað að vera hvatning til áframhaldandi göngu eftir stígum listarinnar.

Við þökkum kærlega fyrir skemmtilegar gjafir