Brautskráning stúdenta í Valaskjálf

Á morgun, laugardaginn 23. maí, klukkan 14:00, munu 47 nemendur útskrifast frá Menntaskólanum á Egilsstöðum. Um 40 þeirra verða viðstödd brautskráningarathöfn í Valaskjálf hér á Egilsstöðum. Að þessu sinni útskrifast tólf nemendur af félagsgreinabraut, níu af náttúrufræðibraut, fjórir af listnámsbraut, tuttugu af opinni braut, einn af framhaldsskólabraut og einn með viðbótarnám til stúdentsprófs. 

Athöfninni verður streymt á Youtube-rás skólans.