Fjarnám á haustönn 2021

Umsóknarfrestur í fjarnám á haustönn 2021 er til 6. ágúst. Fjölmargir áfangar eru í boði, bæði kjarnagreinar og áhugaverðir valáfangar. Námsframboðið og allar upplýsingar eru hér á heimasíðunni undir fjarnám. Einnig má senda póst á fjarnam@me.is ef einhverjar spurningar vakna, aðstoð vantar við valið eða hugur stendur til að láta meta nám sitt inn á námsbraut í ME. Athugið þó að sumarleyfi standa yfir til 3. ágúst.

Umsóknir skulu berast á umsokn.inna.is.