Fjarnám á vorönn 2024

Umsóknarfrestur í fjarnám á vorönn 2024 er frá 15. nóvember - 15. desember. Fjölmargir áfangar eru í boði, bæði kjarnagreinar og áhugaverðir valáfangar. Námsframboðið og allar upplýsingar eru hér á heimasíðunni undir fjarnám. Einnig má senda póst á fjarnam@me.is ef einhverjar spurningar vakna eða aðstoð vantar við valið.