Fjarfundur fyrir foreldra - Karlmennskan og Þorsteinn V.

Múlaþing og Menntaskólinn á Egilsstöðum taka höndum saman og vilja bjóða foreldrum grunn- og framhaldsskólanema á fræðsluerindi Þorsteins V. Einarssonar, #karlmennskan í fjarfundi, þann 14. janúar kl. 20.30. 

Markmiðið með erindi Þorsteins er að varpa ljósi á íhaldssamar ráðandi hugmyndir um karlmennsku, afleiðingar þeirra og svara því hvernig við getum skapað jákvæðri karlmennsku ráðandi sess og styðja í leiðinni við jafnrétti á Íslandi. 

Þorsteinn, er menntaður kennari með meistaragráðu í kynjafræði en hann stóð fyrir samfélagsmiðlaátakinu #karlmennskan árið 2018 og heldur úti vefsíðu og samfélagsmiðlum undir nafninu #karlmennskan.

Linkurinn inn á erindi Þorsteins er hér