Fyrstu fundir félaga NME og kosningar

Nú fer félagsstarfið innan Nemendafélags ME að komast á fullt. Í síðustu viku var fyrsti fundur Ritfélags ME, þar sem áhugasömum nemendum var boðið að taka þátt í starfi félagsins. Ritfélag ME hefur undanfarin ár gefið út Ókindina, skólablað ME, auk nýnemablaðs og árbókar á síðasta skólaári.

Nemendur sem hafa áhuga á að taka þátt í nýjum skákhópi eru síðan hvattir til að mæta á fund í Svartfelli þriðjudaginn 25. ágúst kl. 12:20.

Aðalfundur Leikfélags ME

Fyrsti fundur Leikfélags ME, aðalfundur félagsins, verður haldinn þriðjudaginn 25. ágúst kl. 20:00 á hátíðarsal skólans og eru allir áhugasamir nemendur hvattir til að mæta. Það þarf margar hendur í margvísleg verkefni fyrir utan leiklistina sjálfa, svo sem leikmyndagerð, búningahönnun, hár og förðun, ljós, hljóð, markaðssetningu og hönnun, svo eitthvað sé nefnt. Endilega mætið og takið þátt í starfinu. Þau sem ekki geta mætt þennan dag geta einnig haft samband við Árnýju Birnu, formann leikfélagsins.

Aðalfundur Tónlistarfélags ME

Fyrsti fundur Tónlistarfélags ME, aðalfundur félagsins, verður haldinn mánudaginn 31. ágúst kl. 15:15 í Svartfelli. Áhugasamir nemendur sem spila á hljóðfæri, syngja, hafa áhuga á hljóðblöndun, viðburðastjórnun eða vilja aðstoða félagið á annan hátt eru hvattir til að mæta og taka þátt í starfinu. Einnig er hægt að hafa samband við Laufeyju Helgu, formann tónlistarfélagsins, ef ekki er mögulegt að mæta á fundinn.

Kosning nýnemafulltrúa og formanns Málfundafélags ME

Í þessari viku verður jafnframt kosið í embætti nýnemafulltrúa og formanns Málfundafélags ME. Framboð til beggja embætta þurfa að hafa borist Heiðdísi Lóu, meðstjórnanda NME, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 24. ágúst. Áhugasamir geta til dæmis sent skilaboð í gegnum Instagram-reikning NME. Kappræður milli frambjóðenda til embættanna tveggja verða haldnar síðar í vikunni.

Að lokum er minnt á lokaðan Facebook-hóp ME-inga skólaárið 2026-2027, þar sem nemendaráðið auglýsir meðal annars viðburði og annað sem er á döfinni. Allir dagskólanemar eru hvattir til að ganga í hópinn.

Myndin sem fylgir fréttinni er frá Skógardeginum mikla, þar sem nemendur ME komu fram. Myndina tók Birkir Snær.