70 nýnemar komu saman í ME í dag og tóku þátt í dagskrá svokallaðs nýnemadags.
Dagurinn hófst á því að Árni skólameistari tók á móti hópnum í fyrirlestrarsal skólans og bauð nemendur velkomna. Nemendaráð skólans kynnti sig jafnframt, starf sitt og félagslífið á vegum skólans.
Að því loknu fengu nemendur kynningu og fræðslu í minni hópum um námsskipulag og nemendaþjónustu, auk aðstoðar við uppsetningu og innskráningu í helstu námskerfi. Þá var rölt með hópana um húsakynni skólans og boðið upp á hádegisverð í mötuneytinu.
Deginum lauk síðan með gönguferð út í bæ með skólameistara og pylsugrilli við skólann í fallegu veðri.
Í fyrramálið kl. 9:00 verður skólinn settur á hátíðarsal skólans. Að skólasetningu lokinni verður kennt samkvæmt stundatöflu, að verkefnatímum undanskildum.
Allt starfsfólk hlakkar til að hitta nýja sem eldri nemendur á morgun og saman göngum við inn í haustið með bjartsýni, gleði, virðingu og vinnusemi að leiðarljósi.


