Göngudagur í ME í dag

Í dag er göngudagur í ME. 

Gangan hefst kl 10:00 frá ME og lýkur með pylsupartýi við ME eftir kl 14:00. Kennsla fellur niður þennan dag en allir nemendur eru hvattir að koma með og koma klædd eftir veðri. 

Göngudagurinn er einn af þremur opnum dögum yfir skólaárið og fá nemendur sem mæta á alla þrjá dagana einingu fyrir. Nemendur sem mæta skrá sig á lista áður en farið er af stað, en listana má finna bæði í kennsluhúsi og heimavistarhúsi um morguninn. Hægt að búa til nesti í mötuneyti en enginn hádegismatur verður í dag.

Gangan

Gengið verður áleiðis í Fellabæ langleiðina að brúnni en ganga síðan meðfram Egilsstaðaflugvelli að Eyvindará. Við hringgöngum flugvöllinn og förum síðan yfir til austurs að hinu nýja og glæsilega hreinsivirki Múlaþings. Þar förum við síðan til suðurs undir brekkunni og komum á planið.

Spurningakeppni

Nemendur búa til 2 til 8 manna lið til að taka þátt í spurningakeppni. Á flugvallargirðingunni verða átta blöð með talsverðu millibili þar sem finna má léttar spurningar. Hópstjóri slær inn svör á símann og tekur mynd af hópnum þar sem þemað er flugvélar. Myndirnar sendast á skólameistara á arniola@me.is

fh. Leiðangursstjórnar göngudags.
Árni Óla