Heimavistarbúar athugið!
Það verður heimavistarfundur í dag, þriðjudag í 6. blokk kl: 15:15 á sal skólans í vistarhúsi.
Farið verður yfir ýmis praktísk heimavistarmál eins og umgengni og samskipti ásamt áætlanum um brunavarnir og flóttaleiðir.
Kosið verður einnig í heimavistarráð fyrir skólaárið - tveir nemendur af hverjum gangi.
Áhugasamir hafi samband við skólameistara en einnig má bjóða sig fram á fundinum.
Mjög mikilvægt að allir nemendur á heimavist mæti!