Tónlistarfélag ME blés til tónleika í Alþýðuskólanum á Eiðum síðastliðið miðvikudagskvöld. Þar stigu 21 nemandi á stokk og fluttu metnaðarfulla og vel æfða dagskrá. Sebastían Andri Kjartansson tónlistarmaður og fyrrum nemandi skólans var kynnir kvöldsins og stóð hann sig með prýði. Óttar Eyþórsson var hljóðmaður.
Að þessu sinni var þema tónleikanna íslenskt sveitaballarokk en á efnisskránni voru meðal annars lög með eða eftir Stuðmenn, Bubba, Trúbrot, Sálina hans Jóns míns, Í svörtum fötum, 200.000 naglbíta, GCD og Papa. Stemningin var frábær, um 250 manns sóttu tónleikana og þétt setið var í salnum.
TME hefur verið í miklum blóma undanfarin ár og allir nemendur sem hafa áhuga á að syngja og/eða spila á hljóðfæri eru markvisst hvattir til að taka þátt í starfinu. Enginn þarf að taka að sér stærra hlutverk en viðkomandi treystir sér til.
Að þessu sinni tóku eftirfarandi nemendur þátt, sungu og/eða léku á eftirfarandi hljóðfæri:
Tónleikarnir voru fyrstu tónleikar TME á skólaárinu 2026-2027 undir stjórn þeirra Laufeyjar Helgu Einarsdóttur (formanns), Loga Beck, Mariju Evu Kruze Unnarsdóttur og Friðjóns Inga Þorlaugssonar. Síðustu vikur hafa verið þeim skemmtilegar en krefjandi en það er að mörgu að huga í stjórnarstarfinu. Formaður og stjórn TME hverju sinni hafa yfirumsjón með vali á tónlist fyrir tónleika, skiptingu laga á milli flytjenda, að skipuleggja æfingar, velja og bóka sal, leigja hljóðkerfi, fá hljóðmann, auglýsa viðburðinn o.fl., svo heil mikil vinna er á bakvið tónleika af þessu tagi.
Samkvæmt Laufeyju og stjórninni er ýmislegt fram undan hjá TME. Á vorönn munu félagið halda Barkann - forkeppni fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna, auk þess sem TME mun sjá um tónlistina í uppsetningu Leikfélags ME á söngleiknum Hvar er draumurinn. Þar að auki stefnir stjórnin á að halda aðra nemendatónleika með vorinu.
Laufey hvetur áhugasama til að fylgja TME á Instragram. Nemendur sem vilja bætast í hópinn og taka þátt í starfinu geta meðal annars hafa samband við félagið með skilaboðum á Instagram.

Við óskum stjórn TME og öllum þátttakendum í félaginu hjartanlega til hamingju með kvöldið og þökkum þeim jafnframt fyrir mikilvægt framlag til félagslífs skólans og menningarlífs á Austurlandi.
Hér fyrir neðan má skoða myndir frá kvöldinu. Ljósmyndari: Fjölnir Björn Hlynsson.