Háskóli Íslands veitir árlega menntaverðlaun til nýstúdenta sem hafa náð framúrskarandi árangri í námi til stúdentsprófs og hafa jafnframt sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði íþrótta eða lista, lagt sitt af mörkum til skólasamfélagsins eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður.
Í ár var Ína Berglind, nýstúdent, ein þeirra sem hlutu verðlaunin og tók hún við þeim í gær. Árni skólameistari og Eyrún áfangastjóri afhentu henni þau fyrir hönd HÍ.
Hamingjuóskir, kæra Ína Berglind!