Innritun 10. bekkinga hefst 20. mars

Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á haustönn 2023 verður sem hér segir:

  • Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-28. febrúar. - Ef einhverjir hafa ekki sótt um en vilja komast í ME er gott að hafa samband sem allra fyrst við skólameistara.
  • Innritun eldri nemenda fer fram 27. apríl til 1. júní.
  • Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 20. mars til 8. júní.

Almennar upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má finna á vef Menntamálastofnunar. Þegar búið er að opna fyrir umsóknir er hægt að sækja um og skoða stöðu umsókna á sama vef.

Allir áhugasamir um nám i ME geta leitað upplýsinga á heimasíðu skólans, sér í lagi undir merkinu "kynning" sem er á miðri síðu ME. Þá er einnig hægt að nálgast mikið magn upplýsinga undir "Námið" flipanum. Kynningardagur ME fyrir 10. bekkinga verður 22. mars milli 18 og 20 og hvetjum við alla áhugasama 10. bekkinga og forráðamenn þeirra að mæta á svæðið. Skráning fer fram hér.