Innritun í ME á haustönn 2021

Menntaskólinn á Egilsstöðum
Menntaskólinn á Egilsstöðum

Innritun í ME á haustönn 2021 fer fram á slóðinni menntagatt.is og umsækjendur nota rafræn skilríki eða íslykil til að sækja um.

Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-28. febrúar
Innritun á starfsbrautir fer fram 1.-28. febrúar. Áætlað er að afgreiðslu umsókna þessara nemenda verði lokið fyrir lok apríl.

Innritun 10. bekkinga fer fram frá á tímabilinu 1. mars - 10. júní.
Forinnritun nemenda sem ljúka munu 10. bekk vor 2021 (fæddir 2005 eða síðar) hefst 8. mars og lýkur 13. apríl nk. Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast inn í umsókn á netinu. Foreldrar fá einnig sent kynningarbréf um umsóknarferlið. 

Innritun eldri nemenda fer fram 5. apríl til 31. maí
Eldri nemendur (fæddir 2004 og fyrr) geta sótt um frá 5. apríl til 10. júní.

Íslykill og rafræn skiríki

Þeir sem ekki eiga rafræn skilríki í síma geta nálgast þau hjá sínum viðskiptabanka. Þeir sem vilja nota Íslykil  sækja um hann á www.island.is at www.island.is og fá sendan í heimabanka (2-3 mínútur) eða á lögheimili (2-3 virkir dagar).