Íslenskir tónleikar TME

Þann 11. október ætlar Tónlistarfélag ME að halda íslenska tónleika í Valaskjálf. Tekin verða lög eftir Stuðmenn, Todmobile, Sálina hans Jóns míns, Trúbrot, Írafár, 200.000 Naglbíta og fleiri frábærar íslenskar hljómsveitir.
Tónleikarnir verða haldnir í Valaskjálf þann 11. október og byrja þeir kl. 20:00. Húsið opnar klukkan 19:30 og verður hægt að kaupa miða í andyrinu.
Miðaverð: 2.500kr
NME og starfsfólk ME: 2.000kr
Undir 15 ára: 2.000kr