Komin til starfa

Stjórnendur ME og starfsfólk á skrifstofu er komið til starfa í ME. Unnið er að skipulagningu komandi skólaárs og komu kennara og annarra starfsmanna til starfa. 

Við förum inn í nýtt skólaár með COVID ívafi, og ljóst að skólastarfið mun að einhverju leyti vera litað af viðveru veirunnar. Vert er að minna á að skólinn fylgir fyrirmælum almannavarna um takmarkanir og því ómögulegt að segja til um hvernig fram vindur. Um leið og liggur fyrir skipulag fyrir komandi skólabyrjun verða sendar út upplýsingar og settar hér á síðu ME

Við hlökkum til samstarfsins við nemendur og forráðamenn á komandi vetri.