Foreldrum og forráðafólki nýnema er boðið á kynningarfund í fyrirlestrarsal ME í kennsluhúsi, sunnudaginn, 23. ágúst kl. 17:00. Fundurinn verður jafnframt í streymi á Teams fyrir þau sem ekki hafa tök á að koma á staðinn. Árni og Nanna fara yfir skipulag námsins og þjónustu, auk þess að svara spurningum.
Athugið að fundurinn er ekki fyrir nemendur.
Hér má nálgast tengil fyrir streymið.
Strax eftir kynningarfundinn verður aðalfundur foreldra- og hollvinasamtaka ME í stofunni við hliðina á fyrirlestrarsalnum. Enn vantar 2-3 áhugasama til að leiða samtökin næsta skólaárið.