LME setur upp leiksýninguna "Fyrsti kossinn"

Leikfélag ME eða LME eins og það er kallað í daglegu tali setur upp leiksýninguna "Fyrsti kossinn" um þessar mundir. Frumsýning fer fram 20. febrúar í Sláturhúsinu. Fjölmargir nemendur koma að uppsetningu sem þessari og verður þetta án efa glæsileg sýning. Það er gríðarlega ríkt tónlistar- og leiklistarlíf í ME og því alltaf mikið fjör þegar þeir tveir klúbbar sem standa að leik og tónlistarlífi skólans taka höndum saman og setja upp sýningar. 6 sýningar verða í boði og kostar miðinn 2500 kr. 

Fyrsti kossinn er söngleikur eftir Brynju Ýr Júlíusdóttur og Guðlaug Ómar Guðmundsson og er byggður á tónlist eftir Rúnar Júlíusson. Leikritið fjallar um líf og ástir meðlima hljómsveitarinnar Ásanna sem reyna að meika það með því að vinna eina stærstu hljómsveitarkeppni landsins, Músíktilraunir. Þegar aðalsöngkonan bregður sér til London þá eru góð ráð dýr og strákarnir í hljómsveitinni þurfa að finna sér nýja söngkonu og þá flækjast málin í lífi hljómsveitarmeðlimanna. Lifandi tónlist, söngur og dans einkenna sýninguna.

Miðasala hófs þann 1. febrúar og gengur vel. Miða er hægt að nálgast á www.tix.is og hægt er að sjá umfjöllun um leikara sýningarinnar og tónlistarfólk á síðu leikfélagsins á Facebook og Instagram. 

Sýningar verða á eftirfarandi tímum

20. febrúar kl. 20:00 - Frumsýning

21. febrúar kl. 16:00

22. febrúar kl. 16:00

22. febrúar kl. 20:00

24. febrúar kl. 20:00

25. febrúar kl. 20:00 

Við hvetjum öll til að skella sér á sýningu og styðja við bakið á listsköpun unga fólksins okkar.