Mikið um að vera hjá ME-ingum

Síðasti mánuður hefur verið afar viðburðaríkur hjá nemendum Menntaskólans á Egilsstöðum, og nóg um að vera bæði innan skólans sem utan.

Nemendur létu gott af sér leiða í Gleðiviku skólans undir styrkri stjórn Nemendaráðs ME, þegar efnt var til svokallaðrar áheitakeppni, „Áskorunarviku“. Þar voru nemendur hvattir til að bjóða sig fram í ýmiss konar áskoranir þegar ákveðinni upphæð hafði verið safnað. Alls söfnuðust 125 þúsund krónur sem runnu óskertar í styrktar- og minningarsjóðinn Örninn, sem styður við börn og ungmenni sem hafa misst náinn ástvin.

Fyrr í mánuðinum fór einnig fram söngkeppnin Barkinn á vegum Tónlistarfélags ME, en Barkinn er undankeppni skólans fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna. Húsfyllir var á viðburðinum og tóku 11 söngvarar þátt í keppninni, auk þess sem hljóðfæraleikarar í TME spiluðu með þeim.

Útskriftarefnið Stefanía Þórdís Vídalín Áslaugardóttir bar sigur úr býtum með frumsamda lagið „Sólsetrið“ og verður því fulltrúi ME í Söngkeppni framhaldsskólanna í Háskólabíói þann 11. apríl. Við hlökkum til að fylgjast með henni í keppninni og því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni.

Í öðru sæti varð Árný Birna Eysteinsdóttir með lagið „Er hann birtist“, sem hljómsveitin Hljómar gerði vinsælt, og í þriðja sæti varð Logi Beck með lagið „Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig“, sem flestir þekkja í flutningi Ragga Bjarna.

Bæði Árný Birna og Logi fóru einnig með burðarhlutverk í uppsetningu Leikfélags ME á Fyrsta kossinum í febrúar, þar sem fjöldi nemenda kom að sýningunni, meðal annars í leik, söng, tónlistarflutningi, dansi, hljóði, ljósum, leikstjórn, sviðsmyndagerð, hári, förðun og markaðssetningu.

Í mars vann lið ME Delta-deild Forritunarkeppni framhaldsskólanna. Í liðinu voru Sigbjörn Viktor, Arnar Freyr og Brynjar Pálmi, sem allir hafa stundað nám í forritun við skólann undir leiðsögn Guðmundar Rúnars.

Um síðustu helgi keppti rokkhljómsveitin Ovium í undankeppni Músíktilrauna í Hörpu og komst áfram í úrslit í gegnum áhorfendakosningu. Hljómsveitin samanstendur af núverandi og fyrrverandi nemendum ME – þeim Benna, Braga Má, Loga og Sebastían – sem allir hafa verið mjög virkir í Tónlistarfélagi skólans. Nafn sveitarinnar er vísun í einkunnarorð Nemendafélags ME, „Ovium sanctarum“, sem þýðir „hin heilaga kind“. Við óskum þeim góðs gengis í úrslitum og hvetjum núverandi og fyrrverandi ME-inga sem eiga heimangengt að mæta í Hörpu og styðja við bakið á þeim.

Í morgun gaf einnig ME-ingurinn og tónlistarkonan Ína Berglind út sitt fyrsta lag á streymisveitum. Lagið heitir „Eitt sinn“ og var einmitt sigurlag Barkans í fyrra. Við óskum henni til hamingju og hvetjum alla til að hlusta á lagið og bæta því á spilunarlista hjá sér.

Gettu betur lið skólans, þau Sólgerður Vala, Steinar, Auðun, ásamt Jóhanni Hjalta þjálfara, hefur frá áramótum unnið sig áfram í undanúrslit keppninnar og keppir þann 2. mars við Verzlunarskóla Íslands. Það væri ánægjulegt að sjá salinn fyllast af fyrrverandi og núverandi ME-ingum til að hvetja liðið áfram.

Við erum afar stolt af öllum okkar nemendum, seiglunni og eljunni, og fátt sem jafnast á við að fylgjast með þeim stækka og blómstra á margvíslegum vettvöngum. 

 

Mynd af LME: ÁB ljósmyndun (Ágúst Bragi Daðason) / Mynd af Ínu Berglindi: Elín Eik Guðjónsdóttir / Mynd af meðlimum Ovium: Músiktilraunir / Mynd af nemendaráði ME: Rannveig Þórhallsdóttir / Mynd af Gettu betur liði: Sigríður Svandís Hafþórsdóttir / Mynd af sigurvegurum Barkans: ÁB ljósmyndun (Ágúst Bragi Daðason) / Mynd af nemendum í forritun: óþekkt).