Menntaskólinn á Egilsstöðum hlaut í ár Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD og aðrar taugaþroskaraskanir. Verðlaunin voru afhent í síðustu viku á málþingi samtakanna, Þegar ADHD fylgir þér.
Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður samtakanna, og Stefán Magnússon, varaformaður ÖBÍ, afhentu Helgu Þorleifsdóttur, félagsráðgjafa og verkefnastjóra nemendaþjónustu við ME, viðurkenningarskjal og málverk eftir listakonuna Dagmar Róbertsdóttur, Döllu.
Í ávarpi Vilhjálms var einnig minnst á sveigjanleika í námi, fjölbreytt námsmat, verkefnatíma og einstaklingsmiðuð úrræði. Þá var vakin athygli á gagnabanka sem ME hefur þróað á vef skólans með fræðslu og hagnýtum verkfærum um ADHD og nám fyrir nemendur, foreldra og fagfólk. Í lokaorðum sínum sagði hann að ADHD samtökin vildu með verðlaununum varpa ljósi á framúrskarandi nálgun skólans og þakka fyrir framsækið starf í þágu nemenda með ADHD.
Helga þakkaði samtökunum fyrir viðurkenninguna og sagði það ánægjulegt að sú vinna sem starfsfólk skólans hefði um árabil lagt í stuðning við nemendur með ADHD væri metin með þessum hætti. Í þakkarræðu sinni lagði hún áherslu á þá sýn sem hefur verið leiðarljós í þjónustu skólans: „Við höfum lagt áherslu á að mæta nemendum snemma, hlusta á þarfir þeirra og hjálpa þeim að finna leiðir í námi sem byggja bæði á styrkleikum þeirra og þeim áskorunum sem þeir standa frammi fyrir.“ Hún sagði einnig að markmiðið næði langt út fyrir sjálfa framhaldsskólagönguna: „Markmið okkar er ekki eingöngu að hjálpa nemendum að komast í gegnum framhaldsskólann. Við viljum jafnframt stuðla að því að þeir öðlist meiri sjálfsþekkingu, trú á eigin getu og verkfæri sem nýtast þeim áfram í námi, starfi og lífi.“
Helga notaði einnig tækifærið til að beina sjónum að þeim ungmennum sem bíða eftir ADHD-greiningu og þjónustu. Hún hvatti stjórnvöld til að finna varanlegar leiðir til að stytta biðtíma og tryggja samfellu þegar ungmenni verða 18 ára og færast á milli þjónustukerfa. „Skilin milli barna- og fullorðinsþjónustu mega ekki verða til þess að ungmenni þurfi að hefja vegferð sína í kerfinu upp á nýtt eða að þjónusta rofni á þessum mikilvægu tímamótum.“ Helga sagði starfsfólk framhaldsskólanna sjá vel hvaða afleiðingar langvarandi óvissa og bið eftir þjónustu geti haft fyrir skólagöngu ungmenna. Skólar geti gert margt til að styðja við nemendur en þeir geti ekki komið í stað þeirrar þjónustu sem heilbrigðiskerfið þurfi að veita. Kerfin þurfi að vinna saman og tryggja að enginn falli á milli þeirra.“
Hvatningarverðlaunin eru mikil viðurkenning fyrir það starf sem unnið hefur verið innan Menntaskólans á Egilsstöðum og um leið hvatning til að halda áfram að þróa stuðning við fjölbreyttan nemendahóp. Líkt og Helga sagði í lokaorðum sínum lítur skólinn á verðlaunin sem hvatningu til áframhaldandi þróunar:
„Við erum því afar stolt af þessari viðurkenningu. Um leið lítum við á hana sem hvatningu til að halda áfram að þróa skólastarf þar sem fjölbreytileiki nemenda er viðurkenndur og hver og einn fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum."