ME í fjögurra liða úrslit Gettu betur!

Lið ME í Gettu betur 2026 Auðun, Steinar og Sólgerður Vala
Lið ME í Gettu betur 2026 Auðun, Steinar og Sólgerður Vala

Menntaskólinn á Egilsstöðum lagði Borgarholtsskóla í Gettu betur í kvöld með 27 stig gegn 15 stigum Borgó. ME er þar með komið í fjögurra liða úrslit í fimmta skiptið í sögunni ef greinahöfundi telst rétt til (Stuðst við Wikipedia). ME byrjaði hraðaspurningarnar vel og nældi sér í 13 stig en Borgó fékk á sama tíma 5 stig. ME svaraði vel í bjöllu spurningum og juku forskot sitt hægt og örugglega. Við óskum Sólgerði Völu, Steinari, Auðuni og Jóhanni Hjalta þjálfara hjartanlega til hamingju.

Það er afar skemmtilegt að fylgjast með ME í Gettu betur og myndast skemmtileg stemming í kring um skólann bæði af núverandi og fyrrverandi nemendum í kring um keppnina. 20 manna hópur fór að austan til að hvetja liðið áfram og töluvert af útskrifuðum ME-ingum mættu einnig á svæðið sem við erum afar glöð með.

Þeir sem hafa áhuga á sögu ME í Gettu betur geta lesið grein eftir Stefán Boga Sveinsson sem birtist í blaðinu Glettingi í tilefni af 40 ára afmæli skólans. Blaðið í heild sinni má nálgast hér á heimasíðu ME. Þar má einnig finna annað skemmtilegt efni eins og sögu Barkans til ársins 2019, en Barkinn varð 30 ára í ár.

Við hlökkum til að sjá hverjir verða næstu andstæðingar ME í Gettu betur og vonumst til að við fyllum salinn af núverandi og fyrrverandi ME-ingum til að hvetja liðið áfram. Áfram ME!