Í úrslit í stærðfræðikeppni

Á myndinni er Brynjar ásamt Davíð og Elínu Ásu sem bæði kenna stærðfræði við skólann.
Á myndinni er Brynjar ásamt Davíð og Elínu Ásu sem bæði kenna stærðfræði við skólann.

Stærðfræðikeppni framhaldsskólanna 

Stærðfræðikeppni framhaldsskólanema hefur verið haldin árlega frá vetrinum 1984-1985 en keppnin, sem haldin er á vegum Íslenska stærðfræðafélagsins og Félags raungreinakennara, hefur það markmið að efla áhuga ungs fólks á stærðfræði og öðrum greinum sem byggja á stærðfræðilegum grunni. Á hverju ári taka hundruð nemenda víðs vegar af landinu þátt í forkeppni og þeir sem ná bestum árangri vinna sér rétt til þátttöku í úrslitakeppni þar sem stærðfræðinemar landsins etja kappi. ME-ingurinn Brynjar Pálmi Ásgeirsson náði frábærum árangri í forkeppninni sem haldin var á dögunum en hann lenti í 12. sæti á efra stigi keppninnar af alls 163 keppendum. Þannig tryggði hann sér jafnframt þátttökurétt í úrslitum keppninnar, sem fram fer vorið 2027. Við í ME erum afar stolt af Brynjari og óskum honum innilega til hamingju.
 

Öflug stærðfræðikennsla í ME

Árangur sem þessi endurspeglar einnig metnaðarfullt stærðfræði- og raungreinanám við ME markmið kennslunnar á náttúrufræðibraut skólans er að veita nemendum traustan fyrir áframhaldandi nám í verk- og náttúruvísindum og um leið skapa tækifæri fyrir þau sem vilja takast á við krefjandi og spennandi viðfangsefni.

Framboð raungreina- og stærðfræðiáfanga í ME er fjölbreytt en nú á seinni haustspönn er t.d. verið að kenna 3. þreps áfanga í rafsegulfræði (EÐLI3RS05). Á vorönn 2027 verður meðal annars boðið upp á áfanga sem snýr að tvinntölum og deildajöfnum (STÆR3TD05) sem gefur nemendum tækifæri til að kynnast áhugaverðum sviðum stærðfræðinnar sem undirbúa nemendur undir ýmis námsleiðir sem snúa að vísindum, verkfræði og tæknigreinum. Við hvetjum nemendur sem hafa lokið nauðsynlegum undanförum og stefna mögulega í verk- og náttúruvísindagreinar að skrá sig í áfangann í vor en þessa dagana eru einmitt opið fyrir val dagskólanema fyrir vorönn 2027. 

Við óskum Brynjari enn og aftur til hamingju með þennan glæsilega árangur.