ME og Borgarholtsskóli takast á í Gettu betur

Auðun, Steinar og Sólgerður Vala
Auðun, Steinar og Sólgerður Vala

Menntaskólinn á Egilsstöðum og Borgarholtsskóli munu keppa um sæti í 4 liða úrslitum í Gettu betur fimmtudaginn 5. mars næstkomandi. Þetta er annað árið í röð sem ME kemst í sjónvarpið í Gettu betur, en þar áður komst ME í sjónvarpið árið 2018. Keppnin fer fram á RÚV og er í beinni útsendingu. Í liði ME eru þau Steinar Aðalsteinsson, Auðun Lárusson Snædal og Sólgerður Vala Kristófersdóttir. Þjálfari er Jóhann Hjalti Þorsteinsson en hann hefur þjálfað lið ME í als 6 ár með hléum. 

Steinar, sem er einnig formaður Málfundafélags ME sagðist búast við spennandi keppni við Borgarholtsskóla. 

Nemendafélagið stendur fyrir hópferð til Reykjavíkur og eru 20 nemendur ME sem ætla að fara suður og styðja sitt lið. Hvort lið fyrir sig fær 70 sæti í sjónvarpssal og segir Steinar að það væri gaman að fá sem flesta á staðinn, sérstaklega gamla nemendur sem og bara alla sem hafa áhuga. Það er mæting fyrir áhorfendur í Útvarpshúsið, Efstaleiti 1, klukkan 19:30 en keppnin byrjar 20:15. Við hvetjum því öll áhugasöm til að mæta og hvetja ME! 

Óskum Steinari, Auðuni og Sólgerði Völu góðs gengis.