Menntaskólinn á Egilsstöðum varð efstur í könnuninni um stofnun ársins 2025 í flokki meðal stórra stofnana. Þetta er í þriðja skiptið sem ME hlýtur þennan titil, en síðustu 2 ár hefur ME hlotið nafnbótina "Fyrirmyndarstofnun" en það gefur einnig til kynna góðan árangur í sömu könnun.
ME raðast í hóp þeirra stofnana sem skara fram úr í heildareinkunn en gaman er að segja frá því að nokkrir framhaldsskólar koma vel út í könnuninni. ME fékk einkunnina 4,56, sem endurspeglar sterkan starfsanda, góða stjórnunarhætti og jákvæða upplifun starfsfólks af vinnustaðnum. Árangurinn í ár undirstrikar áframhaldandi fagmennsku, öflugt samfélag innan skólans og þá miklu ánægju sem starfsfólk hefur með vinnustaðinn.
Stjórnendur og starfsfólk ME geta verið afar stolt af þessum árangri – hann er skýr vísbending um að skólinn heldur áfram að vera fyrirmyndarvinnustaður þar sem gott starfsumhverfi og jákvæð menning eru í forgrunni.
Nánari upplýsingar um niðurstöður könnunarinnar munu berast skólanum á næstu dögum, en hægt er að sjá einkunnir í einstaka þáttum á síðu Sameykis.