Á morgun, 24. september fara nemendur sem eru á 1. og 2 ári í ME á Starfamessu Austurlands sem að þessu sinni verður í Neskaupsstað. Skyldumæting er á viðburðinn og leggja rútur af stað frá ME stundvíslega klukkan 9. Fjórir úr starfsliði fylgja nemendum eftir sem nokkurskonar hópstjórar; Elva Rún, Rannveig og Reynir sem öll kenna m.a. lífsleikni á spönninni en einnig Olla þroskaþjálfi. Mæting er tekin þegar nemendur mæta inn í rútur. Mikilvægt er að nemendur fari aftur til baka með sömu rútu/sama hópstjóra til að passa betur upp á skráningu og utanumhald nemenda.
Nemendur fá að borða í hádeginu en mega jafnframt taka með sér nesti ef þau vilja. Vegna veðurspár eru allir hvattir til að mæta vel útbúin en við verðum þó fyrst og fremst inn í íþróttahúsi að leysa verkefni sem stýrihópur starfamessunnar hefur útbúið sérstaklega fyrir daginn.