Opið fyrir umsóknir í dagskóla á vorönn

Af Fardögum í ME 2021
Af Fardögum í ME 2021

Búið er að opna fyrir umsóknir í dagskólanám í hjá okkur í ME á vorönn 2022. Allar upplýsingar um nám í boði, spannirnar, verkefnatíma eða aðra þætti er varðar skólann má finna hér á heimasíðunni. 

Umsóknir fara í gegn um www.menntagatt.is eða með því að smella á "umsókn um nám" á forsíðu me.is. 

Skólinn er afar spennandi kostur. Spannir og verkefnatímar hafa fengið mikið lof nemenda og starfsmanna. Nemendum líður vel í ME, heimavistin er góður kostur og mötuneytið mjög gott. Félagslíf í ME er með góðu móti og er til dæmis gott íþróttalíf í skólanum þar sem nemendur hafa aðgang að íþróttahúsi í tímum nokkrum sinnum í viku og sérstakt tónlistarherbergi í heimavistarhúsi sem nemendur geta nýtt til að spila saman eða æfa sig.

Tekið er við umsóknum til 30. nóvember 2021

N4 sjónvarpsstöðin var með skemmtilega umfjöllun um ME fyrir stutt síðan. Gott fyrir áhugasama að sjá