Opið fyrir umsóknir í fjarnám á seinni vorspönn

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í fjarnám á seinni vorspönn. Mikill fjöldi áhugaverðra áfanga er í boði, bæði kjarnafög og ýmsir valáfangar. Allar upplýsingar um námsframboðið og skipulag má finna hér á síðunni undir fjarnám. Einnig er velkomið að senda póst á fjarnam@me.is. Umsóknarfrestur rennur út 9. mars, fyrsta kennsludag spannarinnar.