Nemendur sem eiga rétt á jöfnunarstyrk geta nú sótt um með rafrænum skilríkjum í gegnum Menntasjóð námsmanna.
Opið er fyrir umsóknir til 15. október og er hægt að sækja um styrk fyrir bæði haust- og vorönn í einni umsókn. Berist umsókn um námsstyrk eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15%, frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn.
Til að eiga rétt á jöfnunarstyrk þarf nemandi að vera skráður í að minnsta kosti 20 einingar á önn og ganga til prófs í þeim. Jöfnunarstyrkur skiptist í akstursstyrk og dvalarstyrk:
Við hvetjum nemendur á heimavist og foreldra eða forsjáraðila þeirra einnig til að sækja um húsnæðisbætur. Foreldrar nemenda undir 18 ára aldri geta sótt um þær hjá sínu sveitarfélagi en nemendur sem eru 18 ára og eldri sækja um hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.