Við í Menntaskólanum á Egilsstöðum bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opið hús í ME, fimmtudagskvöldið, 16. apríl n.k. á milli kl. 18:00-20:00. Hægt er að koma við hvenær sem er á þeim tíma. Hæfilegt er að reikna með klukkustund í heimsóknina. Viðburðurinn er nokkurs konar ratleikur með spurningum og verkefnum sem fólk leysir í símunum sínum með því að rölta um húsakynni skólans og spjalla við nemendur og starfsfólk. Leikurinn fer fram í gegnum smáforritið Actionbound sem við mælum með að fólk sé búið að hlaða niður í símana sína fyrir komuna í ME (hér má finna niðurhal bæði fyrir iOS síma og Android). Einnig er hægt að svara ratleiknum á pappír fyrir þau sem það vilja frekar.
Á viðburðinum býðst ykkur, bæði nemendum og forráðafólki, tækifæri til að öðlast skemmtilega innsýn inn í skólastarfið, námsframboðið, þjónustuna, heimavistarlífið og síðast en ekki síst félagslífið. Nemendur, kennarar og starfsfólk sýna frá skólastarfinu á stöðvum víðsvegar um skólann og ykkur gefst tækifæri til að spyrja að öllu því sem ykkur langar að vita um ME.
Boðið verður upp á léttan kvöldverð í mötuneytinu.
Við viljum vinsamlegast biðja ykkur að skrá komu ykkar í gegnum hlekkinn:
https://forms.office.com/e/6sjc2r9GM4
Hér má einnig nálgast viðburðinn á Facebook:
Við vonumst innilega til að sjá ykkur.