Opið samtal um átraskanir í ME

Í dag, 29. janúar býður Elín Vigdís Guðmundsdóttir, áhugasömum nemendum og starfsfólki ME upp á opið samtal um átraskanir, í stofu 28 (Snæfugli) frá kl. 15:10-16:00. Þar mun hún ræða almennt um átraskanir, segja frá reynslu og svara spurningum.
 
Elín Vigdís er formaður SÁTTar (samtaka um átröskun og tengdar raskanir) auk þess að vera ráðgjafi og jóga/hugleiðslukennari hjá átröskunarteymi Landspítalans. Hún er jafnframt lögfræðingur hjá meðferðarheimilinu Krýsuvík og vinnur að því að setja á fót meðferðarúrræði fyrir einstaklinga sem glíma við átraskanir.

Þessa dagana, eftir að hafa nýverið fengið styrk úr Styrktarsjóði geðheilbrigðis, er hún á leið um landið með fræðslu um átraskanir með það að markmiði að auka þekkingu og skilning á átröskunum með áherslu á valdeflingu, samtal og forvarnir.
 
Fyrir þau sem eru áhugasöm um einkaspjall og ráðgjöf býður Elín Vigdís einnig upp á það á skrifstofu Nönnu náms- og starfsráðgjafa, fyrr um daginn, frá klukkan 10:30-12:30. Ekki er þörf á að bóka sig fyrir fram - bara mæta á skrifstofu Nönnu.