Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda

Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda ME haust 2021 hefur verið opnuð. Næstkomandi laugardag, þann 18. desember, munu 25 nemendur útskrifast frá skólanum. Lokaverkefni þeirra eru áhugaverð og fjölbreytt að efni og innihaldi. Nemendur fá hamingjuóskir með lærdómsrík verkefni og þakkir fyrir skemmtilega samveru síðastliðin ár. Slóðin á sýninguna er https://sway.office.com/uJoamhuC9UNm852n?ref=Link