Rafræn sýning á lokaverkefnum útskriftarnemenda ME vor 2025 hefur verið opnuð. Næstkomandi laugardag, þann 24. maí, munu 57 nemendur útskrifast frá skólanum. Lokaverkefnin eru fjölbreytt að efni og innihaldi, fræðandi og áhugaverð. Um leið og nemendum er óskað til hamingju með lærdómsrík verkefni fá þau kærar þakkir fyrir skemmtilega samveru síðastliðin ár og óskir um velfarnað í framtíðinni. Slóðin á sýninguna er hér.