Skólabyrjun í ME haustið 2022

Menntaskólinn á Egilsstöðum hefst með nýnemadegi á sal skólans miðvikudaginn 17. ágúst kl. 10:30. Nýnemadagurinn er ætlaður öllum nemendum sem hefja nám við skólann í fyrsta skipti. Nýnemar verða einir í skólanum þennan dag og fá ýmsar kynningar um skólalífið. Allir nemendur og forráðamenn ólögráða nemenda fá nánari upplýsingar í tölvupósti.

Nýnemum verður skipt í 3 hópa eftir upphafsstöfum í nöfnum þeirra.

Í hópi 1 eru nemendur sem heita nöfnum sem byrja á A-E, í hópi 2 eru nemendur sem heita nöfnum sem byrja á F-M, í hópi 3 eru nemendur sem heita nöfnum sem byrja á N-Ö. Hóparnir fá kynningar á skipulagi námsins, námsvefnum, Menntaskýinu og ýmsu fleira. Dagskránni lýkur um kl. 16:00.

Skólasetning verður fimmtudaginn 18. ágúst kl. 9:00 og hefjast tímar eftir stundaskrá þegar henni lýkur. 

Þetta haustið hefja 217 nemendur nám við skólann og þar af eru 89 nýir nemendur.