Styttist í að skólastarf í ME hefjist

Skrifstofa ME opnaði strax eftir verslunarmannahelgi og eru stjórnendur og starfsfólk í óða önn að skipuleggja skólabyrjun.

Heimavistin verður opnuð fyrir nýnema, sunnudaginn, 16. ágúst, kl. 16:00, kvöldið fyrir svokallaðan nýnemadag. Eldri heimavistarbúar eru velkomin á vist mánudaginn, 17. ágúst, eftir klukkan 16:00.

Sérstakur nýnemadagur verður mánudaginn 17. ágúst, kl. 10:00 þar sem nýnemar hittast og fá leiðbeiningar og kennslu á námsumhverfi skólans og þjónustu. Nánari dagskrá fyrir daginn verður auglýst síðar. 

Skólasetning verður þann 18. ágúst kl. 9:00 á sal skólans í heimavistarhúsi, og hefst hefðbundið skólastarf samkvæmt stundaskrá að henni lokinni. 

Stundatöflur dagskólanema eiga nú að vera aðgengilegar nemendum í gegnum Innu með rafrænum skilríkjum. Unnið er að því að fara í gegnum umsóknir í fjarnám og fá nemendur svör á næstu dögum.