Starfsbraut á ferð og flugi

Dagana 4.-11. maí fóru fjórir nemendur af starfsbraut ME ásamt þremur kennurum í Erasmus ferð til Rómar. Farið var í heimsókn í skólann Italian Hospitality School. Þar fengum var stutta kynningu á skólanum sjálfum og í framhaldinu kennslu í ítölsku sem var mjög skemmtilegt. Allir helstu staðir borgarinnar voru skoðaðir. Þar má nefna Trevi Fountain, Pantheon, Spanish Steps, Colosseum og Roman Forum. Fyrir suma í hópnum var þetta þeirra fyrsta utanlandsferð og virkilega ánægjulegt að geta boðið nemendum slíka upplifun. Ferðin heppnaðist ákaflega vel og hlökkum við til næsta ævintýris.