Sumarlokun skrifstofu

Skrifstofa ME lokar vegna sumarleyfa frá og með 23. júní til og með 4. ágúst. Skrifstofan opnar aftur að loknum sumarleyfum þann 5. ágúst.

Allir umsækjendur um skólavist sjá stöðu umsóknar sinnar föstudaginn 20. júní á vef Menntamálastofunar. Innritunarbréf verða send út í tölvupósti um leið og þau eru klár og í framhaldinu birtast greiðsluseðlar í heimabanka forráðafólks. Ef nemandi fær ekki póst, sendið línu á arniola@me.is.

Ætli nemandi ekki að þiggja skólavist þarf að tilkynna það hið fyrsta til skólameistara.

Ef spurningar vakna um heimavist er best að senda póst á skólameistara á arniola@me.is

Innritun vegna fjarnáms fer fram eftir eftir að umsóknarfrestur er liðinn í ágúst. Ef spurningar vakna er best að senda póst á fjarnam@me.is 

Njótið sumarsins og hlökkum til að sjá öll í haust!